Sport

Yao Ming semur við Houston

Kínverski risinn Yao Ming hefur gert langtímasamning við Houston Rockets í NBA deildinni og verður því á mála hjá félaginu til loka tímabilsins 2010-11. Ekki hefur verið gefið upp hve hár samningurinn er, en þó er talið að fyrsta ár hans muni færa Yao Ming um 12,5 milljónir í árslaun, en fari svo ört hækkandi eftir því sem líður á hann. Þessi tíðindi eru sem köld vatnsgusa framan í Los Angeles Lakers, sem vitað er að hafði mikinn áhuga á að fá Ming til sín eftir að núverandi samningur hans rann út. Þar á bæ eru menn vanir að leita eftir stærstu nöfnunum með lausa samninga og liðið er í óðaönn að finna arftaka Shaquille O´Neal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×