Sport

Auerbach sagður á batavegi

NordicPhotos/GettyImages
Red Auerbach, forseti Boston Celtics er sagður á batavegi eftir að hann var fluttur þungt haldinn á sjúkrahús fyrir helgina. Fregnir herma að hann hafi verið í dái og verið mjög illa á sig kominn, en nú segir talsmaður Boston að sá gamli sé að ná sér hægt og bítandi. Auerbach er að nálgast 88. afmælisdag sinn og hefur verið á mála hjá Boston í yfir hálfa öld, þar sem hann vann meðal annars átta meistaratitla sem þjálfari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×