Sport

Geta ekki leikið í New Orleans

George Shinn, eigandi NBA liðs New Orleans Hornets, segir að þó allir myndu helst vilja að liðið léki áfram í borginni, sé það einfaldlega ekki fræðilegur möguleiki. Fjöldi borga í Bandaríkjunum hefur boðið fram aðstoð sína og fljótlega mun liggja fyrir hvar liðið leikur heimaleiki sína í vetur. "Við viljum ekki yfirgefa sökkvandi skip, en ljóst er að þó við næðum að gera við höllina okkar í tíma, yrði líklega fátt um áhorfendur og því verðum við að hugsa okkur til hreyfings," sagði Shinn. Þegar hafa borist tilboð til félagsins frá Louisville, Kansas, Oklahoma, Nashville og San Diego um að hýsa leiki liðsins í vetur, svo ljóst er að margir eru tilbúnir að rétta hinu unga félagi hjálparhönd á erfiðum tímum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×