Sport

Shaq aðstoðaði við handtöku

Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat hefur löngum sagt að hann ætlaði sér að fara út í löggæslu þegar hann lýkur keppni í NBA deildinni, en um helgina tók hann lögin í sínar hendur þegar hann varð vitni að því að ráðist var á tvo homma í Miami. O´Neal veitti því athygli að maður sem ók framhjá parinu jós yfir það svívirðingum og kastaði að lokum flösku í annan manninn og veitti honum alvarlega áverka. O´Neal veitti mönnunum í bílnum eftirför og gerði lögreglu viðvart, sem varð til þess að óbótamennirnir náðust fljótlega.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×