Sport

Nowitzki bestur á EM

NordicPhotos/GettyImages
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki, sem leikur með Dallas Mavericks í NBA deildinni, var valinn maður Evrópumótsins í körfuknattleik sem lauk í Serbíu um helgina. Hann var yfirburðamaður í liði Þjóðverja á mótinu og raunar yfirburðamaður í keppninni allri. Nowitzki skoraði mest allra í keppninni, eða 26,1 stig og hirti þar að auki 10,6 fráköst að meðaltali í leik. Hann bar lið Þjóðverja á herðum sér alla leið í úrslitaleikinn, þar sem hann var eini maður þýska liðsins sem náði sér á strik, en það nægði ekki gegn sterku liði Grikkja. Í úrvalslið keppninnar voru, auk Nowitzki, valdir þeir Juan Carlos Navarro frá Spáni, Boris Diaw frá Frakklandi og þeir Lazaros Papadopoulos og Dimitrios Diamantidis úr meistaraliði Grikkja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×