Sport

Njarðvík vann mótið í Árósum

Njarðvík fór með sigur af hólmi á æfingamótinu Bakken Bears knock out cup í körfubolta sem lauk í Árósum í dag. Þetta er annað árið í röð sem Njarðvíkingar hampa þessum titli en þeir sigruðu Bakken Bears naumlega í úrslitaleik í dag, 69-67. Heimamenn voru yfir 67-60 en Njarðvíkingar áttu glæsilegan endasprett og það var Egill Jónasson sem tryggði Njarðvík sigurinn með glæsilegri troðslu þegar um 6 sekúndur voru eftir af leiknum. Þór Akureyri tapaði naumlega leiknum um 5. sætið gegn Svendborg, 90-88 í jöfnum leik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×