Sport

Keflavík yfir gegn Haukum

Keflavíkurstúlkur fara á kostum í fyrri hálfleik gegn Haukum í meistarakeppni KKÍ í keflavík, en staðan er 38-19 í hálfleik fyrir Keflavík. Keflavíkurliðið er til að mynda með jafn marga stolna bolta (19) og Haukarnir stig í fyrri hálfleik. Birna Valgarðsdóttir er með 15 stig í liði Keflavíkur og Reshea Bristol er með 12 stig og 9 stolna bolta, en Ragnheiður Theodórsdóttir hefur skorað 7 stig í liði Hauka. Staðan eftir fyrsta fjórðung var 19-7 fyrir Keflavík. Haukaliðið hefur tapað 24 boltum í fyrri hálfleik og þarf svo sannarlega að bíta í skjaldarrendur ef það ætlar sér að jafna leikinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×