Sport

Njarðvík vann meistarakeppnina

Mynd/Víkurfréttir
Njarðvíkingar báru sigurorð af grönnum sínum í Keflavík í meistarakeppni KKÍ í Keflavík í kvöld, 94-79, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 46-42. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 33 stig, en hirti auk þess átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Friðrik Stefánsson skoraði 15 stig og hirti 8 fráköst og Egill Jónasson skoraði 13 stig og varði 8 skot. Hjá Keflvíkingum skoraði Magnús Gunnarsson mest 20 stig, en Arnar Freyr Jónsson skoraði 16. Jason Kalsow skoraði 14 stig og hirti 11 fráköst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×