Sport

Verðum að leika vel á sunnudag

Peter Crouch hefur loksins fundið fjölina sína í framlínu Liverpool og er farinn að skora mörk
Peter Crouch hefur loksins fundið fjölina sína í framlínu Liverpool og er farinn að skora mörk NordicPhotos/GettyImages

Hinn leggjalangi Peter Crouch, sem skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í sigrinum á Deportivo Saprissa í dag, segir að Liverpool verði að leika jafn vel eða betur ef þeir ætli sér að sigra Sao Paulo í úrslitaleik mótsins á sunnudaginn.

"Sao Paulo er lið sem hefur á að skipa mjög hæfileikaríkum einstaklingum og við verðum að vera á tánum og verjast vel á móti þeim. Það væri auðvitað draumur að ná að skora snemma á móti þeim eins og við gerðum í dag. Leikurinn spilaðist á öðrum hraða en við eigum að venjast, en mér fannst við bregðast ágætlega við því," sagði Crouch, en hann var einnig spurður hvernig tilfinning það væri að vera loksins farinn að skora mörk fyrir Liverpool. "Ég vissi að þetta kæmi á endanum," sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×