Sport

Verður ekki viðstaddur útför föður síns

Rafa Benitez verður ekki viðstaddur útför föður síns
Rafa Benitez verður ekki viðstaddur útför föður síns NordicPhotos/GettyImages

Faðir knattspyrnustjórans Rafa Benitez hjá Liverpool lést í vikunni, en stjórinn spænski ætlar engu að síður að vera kyrr í Japan og ætlar að stýra liði Liverpool í úrslitaleiknum við Sao Paulo í heimsmeistarakeppni félagsliða um helgina.

"Það var ekki hægt að fresta jarðarförinni, svo að það er ljóst að ég kemst ekki á hana. Ég mun hitta móður mína í næstu viku og fyrir mér er betra að halda áfram að vinna. Það eina sem ég get gert núna er að halda áfram að gera mitt besta fyrir liðið," sagði Benitez í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×