Sport

Við gerðum allt sem við gátum

Rafa Benitez var skiljanlega fúll eftir tapið í úrslitaleiknum í dag
Rafa Benitez var skiljanlega fúll eftir tapið í úrslitaleiknum í dag NordicPhotos/GettyImages

Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði í samtali við BBC í dag að hans menn hefðu gert allt sem þeir gátu í úrslitaleiknum við Sao Paulo á HM félagsliða í Japan í dag, en allt hefði komið fyrir ekki.

"Við gerðum allt sem við gátum, en ef maður nær ekki að skora verður árangurinn augljóslega lítill. Við áttum fjölda færa og hefðum viljað fá dæmda vítaspyrnu. Þetta var mjög mikilvæg keppni í mínum augum, en nú verðum við bara róa á önnur mið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×