Sport

Tekur Krzyzewski við liði USA?

Körfuboltaþjálfarinn góðkunni, Mike Krzyzewski, sem þjálfað hefur lið Duke-háskólans við góðan orðstír síðustu ár, verður næsti aðalþjálfari bandaríska landsliðsins í körfubolta, ef marka má frétt í USA Today.Krzyzewski var aðstoðarþjálfari Draumaliðsins svokallaða árið 1992, en bandaríska landsliðinu hefur gengið afleitlega undir stjórn NBA þjálfara í síðustu tveimur stórkeppnum og nú hefur verið skipuð sérstök nefnd til að sjá til þess að liðið verði sér ekki frekar til skammar á stórmótum.>



Fleiri fréttir

Sjá meira


×