Vörubíll valt á hliðina í Bakkabakka á Norðfirði um hádegisbil í gær. Var verið að hífa byggingarefni af palli bílsins og varð þunginn til þess að hann valt.
Enginn var í bílnum þegar óhappið átti sér stað en bílstjórinn var að vinna við stjórnbúnað kranans. Bíllinn slapp mjög vel og var honum ekið af vettvangi þegar hann var kominn á réttan kjöl.