Innlent

Reynir að nota falsaðar evrur

Evrur Maðurinn hefur sést við Umferðarmiðstöðina og í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði.
Evrur Maðurinn hefur sést við Umferðarmiðstöðina og í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði.

Lögreglan í Reykjavík varar við erlendum karlmanni sem reynt hefur að koma fölsuðum evrum í umferð. Maðurinn talar bjagaða ensku, er lágvaxinn, dökkur yfirlitum og líklega með gleraugu. Til hans hefur bæði sést við BSÍ í Reykjavík og í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði.

Lögreglan veit um eitt tilfelli þar sem maðurinn bauð téðar evrur í skiptum fyrir bifreið en af þeim viðskiptum varð ekki. Fólk sem tekur við evrum í viðskiptum sínum er beðið að grandskoða útlit seðlanna vel og láta lögreglu vita ef það verður vart við eitthvað óeðlilegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×