Ber við vanþekkingu á reglum 11. ágúst 2006 06:30 háfurinn mundaður Samkvæmt lögum eiga allir sem stunda lundaveiðar að vera með veiðikort. Brot á þessum lögum varða fjársektum eða fangelsi. „
Ástæðan fyrir því að ég var þarna á veiðum án veiðikorts var að ég gerði mér ekki grein fyrir að til þessara veiða þyrfti ég veiðikort,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra um lundaveiðar hans í Grímsey í Steingrímsfirði á dögunum. Í Fréttablaðinu á þriðjudag birtist grein um lundaveiðar Einars og bárust í kjölfarið ábendingar um að hann væri ekki með veiðikort. Við nánari athugun reyndist það rétt. Samkvæmt Sigurði Erni Guðleifssyni, lögfræðingi Umhverfisstofnunar, eru hvorki ráðherra né aðstoðarmaður hans með veiðikort. Samúel Örn Erlingsson, sem einnig var að veiðum á sama tíma, er líka veiðikortslaus. Í annarri grein reglugerðar um veiðikort og hæfnispróf veiðimanna segir: „Allir sem stunda veiðar á villtum dýrum, öðrum en rottum og músum, sbr. lög nr. 64/1994, skulu afla sér veiðikorts.“ Í elleftu grein sömu reglugerðar segir að brot gegn reglunum varði sektum, varðhaldi eða fangelsi og sviptingu veiðileyfis. Sigurður segir grein Fréttablaðsins gefa tilefni til að rannsaka málið betur en fullyrðir ekkert um til hvaða aðgerða Umhverfisstofnun grípi.
Innlent Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Fleiri fréttir Segir Ísland hafa burði til að geta orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Sjá meira