Orsök fjölda alvarlegra slysa 10. september 2006 04:15 Ekið yfir heila línu. Fjölmörg alvarleg umferðarslys hafa orðið þegar ökumenn aka yfir heila línu á þjóðvegunum.
Fjölmörg alvarleg umferðarslys hafa orðið vegna aksturs yfir óbrotna línu á þjóðvegum landsins. Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi umferðarstofu, segir mjög algengt að ekið sé yfir heilar línur og telur víst að ökumenn geri sér ekki grein fyrir hættunni sem því fylgir. „Heil lína er til að láta ökumenn vita að það er hættulegt að aka framúr og þar af leiðandi er það bannað,“ segir Einar Magnús. Að hans sögn hefur fjöldi alvarlegra slysa orðið í umferðinni vegna svona háttalags. „Það er til fjöldi dæma um mjög alvarleg slys vegna þess að menn taka sénsinn á þessu.“ Ásgeir Þór Ólafsson ók um Hellisheiðina á dögunum og varð þess áskynja að ökumaður bílsins á eftir honum ætlaði að taka framúr með því að aka yfir óbrotna línu. Ásgeir fékk samferðamann sinn til að mynda athæfið. Hann segist oft hafa orðið vitni að akstri sem þessum. „Það þarf ekki að fara oft um Hellisheiðina til að sjá svona lagað og að auki fara fjölmargir framúr á vegöxlinni vinstra megin við akreinina,“ segir Ásgeir, sem líkt og Einar Magnús hvetur menn til að láta af þessu háttalagi.
Innlent Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Sjá meira