Uppnám vegna Mozartóperu 2. október 2006 00:30 Upphaf tveggja ára viðræðna Wolfgang Schäuble innanríkisráðherra ásamt Badr Mohammed, leiðtoga arabískra sósíaldemókrata í Þýskalandi.
Ákvörðun Þýsku óperunnar í Berlín um að hætta af öryggisástæðum við fjórar sýningar á óperu eftir Mozart hefur vakið harðar deilur þar í landi. Í einu atriði óperunnar Idomeneo átti að sýna afhöggna hausa þriggja helstu trúarhöfunda mannkyns, þeirra Jesú, Búdda og Múhameðs, ásamt höfði sjávarguðsins Poseidons. Deilurnar þykja minna á uppþotið sem varð vegna birtinga skopmynda af Múhameð spámanni í danska dagblaðinu Jótlandspóstinum. Wolfgang Schäuble, innanríkisráðherra Þýskalands, hefur sagt að ákvörðun óperunnar sé „brjáluð“, en á miðvikudag settist hann ásamt fleiri þýskum ráðamönnum á fund með leiðtogum múslima í Þýskalandi til þess að ræða stöðu múslima þar í landi. Fundurinn markar upphaf að tveggja ára viðræðum, þar sem meðal annars verður rætt hvort taka eigi upp kennslu í íslamfræðum við þýska barnaskóla, sambærilega við fræðslu í kristinni trú og gyðingdómi. „Íslam er mikilvægur partur af Þýskalandi og Evrópu, og verður þess vegna að fallast á siði og gildi sem Evrópa er byggð á,“ sagði Schäuble í nýlegu blaðaviðtali. „Við erum ekki að hefja viðræður þar sem við skiptumst eingöngu á kurteisisorðum."
Erlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira