Innlent

Fundarhlé á Alþingi vegna þingflokksfunda

MYND/GVA

Nú er fundarhlé á Alþingi þar sem hefðbundnir þingflokksfundir standa yfir. Þeim lýkur klukkan sex en þá halda væntanlega áfram heitar umræður um frumvarp ríkisstjórnarinnar um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins.

Stjórnarandstaðan hefur bæði gagnrýnt stjórnina fyrir að riðla þingstörfum og fyrir óbilgirni í málefnum Ríkisútvarpsins á þingi í dag. Fáir þingmenn hafa tekið til máls um RÚV í dag en talað lengi og því má búast við að þingfundur verði fram á kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×