Innlent

Varmársamtök stofnuð í kvöld

Svokölluð Varmársamtök verða stofnuð í Mosfellsbæ í kvöld, en þar eru á ferðinni samtök íbúa á Varmársvæðinu ofan Vesturlandsvegar. Samtökin hyggjast standa vörð um svæðið sem liggur frá upptökum að ósum Varmár en samkvæmt skipuleggjendum verður sérstaða svæðisins að engu gerð ef tillögur um lagningu umferðarmannvirkja á Varmársvæðinu verða að veruleika. Stofnfundurinn verður haldinn í húsakynnum Þrúðvangs í Álafosskvos kl. 20.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×