Innlent

Gísli S. Einarsson næsti bæjarstjóri á Akranesi?

Gísli S. Einarsson
Gísli S. Einarsson MYND/Vísir

Boðað hefur verið til blaðamannafundar í hádeginu vegna myndun nýs bæjarstjórnarmeirihluta á Akranesi. Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á fundi í gærkvöldi, að því er fréttavefurinn Skessuhorn greinir frá. Þar segir að samkvæmt áreiðanlegum heimildum verði Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar sem var á lista sjálfstæðismanna í kosningunum, næsti bæjarstjóri á Akranesi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×