Innlent

Eldur í áburðargeymslu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er nú í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi, þar sem eldur kom upp í fyrrverandi áburðargeymslu verksmiðjunnar upp úr klukkan hálf níu.

Sorp frá iðnfyrirtækjum hefur verið flokkað í skemmunni og leggur mikinn reyk frá eldinum. Engin hætta er á ferðum en ekki er lengur framleiddur áburður í verksmiðjunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×