Nýr heimavöllur Arsenal, Emirates-völlurinn, var opnaður almenningi í fyrsta sinn í dag og fyrsti leikurinn sem spilaður verður á vellinum fer fram á laugardag. Það verður kveðjuleikur Dennis Bergkamp þar sem Arsenal tekur á móti Ajax frá Amsterdam og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 16.
Völlurinn kostaði 390 milljónir punda, eða 52 milljarða króna og mun taka 60.000 áhorfendur í sæti. Fyrstu 20.000 stuðningsmenn Arsenal fengu að skoða völlinn í dag, en vígsluhátíðin sjálf fer fram á laugardag.