Innlent

Slapp úr brennandi hjólhýsi

Maður slapp ómeiddur út úr brennandi hjólhýsi í Þjórsárdal í nótt, en hjólhýsið brann til kaldra kola. Um leið og hann komst út, hringdi hann á slökkvilið, sem brátt kom á vettvang, en þá var hjólhýsið alelda og ekki lengur við neitt ráðið. Svo vel vildi til að ringt hafði á svæðinu í gærkvöld og fram yfir miðnætti, þannig að eldur náði ekki að læsa sig í skóginn í grenndinni. Þá voru önnur hjólhýsi á svæðinu í öruggri fjarlægð. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×