Blóðugur dagur í Afganistan 3. ágúst 2006 22:30 Á vettvangi árásarinnar í bænum Panjwai í Kandahar-héraði. MYND/AP
Fjöldi óbreyttra borgara og kanadískra hermanna var drepinn í sprengjuárásum í Afganistan í dag. Dagurinn var einn sá blóðugasti í landinu í marga mánuði. Í sjálfsmorðsárás sem var gerð í bænum Panjwai í Kandahar-héraði í Suður-Afganistan beið tuttugu og einn óbreyttur borgari bana og þrettán særðust. Fjöldi barna var á meðal hinna látnu. Árásarmaðurinn ók bifreið inn í mannþröng á útimarkaði og sprengdi sig svo í loft upp. Lögreglan í Panjwayi telur að talíbanar hafi staðið á bak við ódæðið en enginn hefur lýst yfir ábyrgð á því. Árásin er ein sú blóðugasta síðan Bandaríkjaher og bandamenn þeirra réðust inn í Afganistan árið 2001. Annars staðar í Kandahar-héraði féllu fjórir kanadískir hermenn í þremur sprengjuárásum í dag. Tíu hermenn særðust að auki. Á meðal hinna látnu var einn herforingi. Þetta er mesta mannfall sem Kanadamenn hafa orðið fyrir á einum degi síðan hernámið í Afganistan hófst fyrir fjórum árum en alls hafa 23 hermenn úr þeirra röðum verið myrtir síðan 2001. Aðeins eru nokkrir dagar síðan NATO tók við stjórn öryggismála af Bandaríkjamönnnum í suðurhluta Afganistans.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira