Milli átta og tíu þúsund manns eru samankomnir á ungmennamóti UMFÍ á Laugum í Þingeyjarsveit. Mótshaldið hefur gengið mjög vel að sögn Björns Jónssonar, forseta UMFÍ, hann segir að það eina sem hafi komið upp á hafi verið að þrír piltar sáust drekka áfengi og voru þeir þá sendir heim.
Ungmennalandsmót hafa verið haldin um verslunarmannahelgi um nokkurra ára skeið og ávallt verið fjölmenn.