Líkamsárás við verslun 10-11
Lögreglan í Reykjavík handtók í gærkvöldi þrjá menn vegna líkamsárásar við verslun 10-11 á horni Barónstígs og Hverfisgötu. Átökin eru talin tengjast vélhjólaklúbbnum Fáfni og uppgjöri í undirheimunum. Heimildarmenn NFS á staðnum sögðu að árásarmennirnir hefðu verið að ganga erinda utanaðkomandi aðilla. Fjölmennt lögreglulið stóð að handtökunum, en fórnarlambið var flutt á Slysadeild þar sem gert var að meiðslum. Sá sem fyrir árásinni varð, mun ekki hafa kært árásina, sem styður þá tilgátu að hér hafi verið um uppgjör að ræða.