Ítalir setja Ísraelum skilyrði 22. ágúst 2006 11:48
Ítalir munu ekki leiða alþjóðlegt friðargæslulið í Líbanon, eins og þeir höfðu boðist til, ef Ísraelsher hættir ekki árásum sínum á Suður-Líbanon. Utanríkisráðherra Ítalíu, Massimo D'Alema, greindi frá þessu í morgun.D'Alema setti það skilyrði að Ísrealsher virti vopnahléið að fullu og hætti skotárásum sínum í Suður-Líbanon. Fyrr munu Ítalir ekki leiða alþjóðlegt friðargæslulið Sameinuðu Þjóðanna á svæðinu. Ísraelar segjast hafa skotið þrjá liðsmenn Hizbolla í Suður-Líbanon í gær. Forsætisráðherra Ítalíu, Romano Prodi, lýsti því yfir í gær að Ítalir væri reiðubúnir til að senda 3.000 manna herlið á svæðið en það er mun meiri fjöldi en aðrar þjóðir hafa boðið.Mun erfiðara hefur reynst að koma saman fimmtán þúsund manna friðargæslulið en búist var við. Flestar Evrópuþjóðir hafa hikað við að manna friðargæsluna og leggja til vopn þar sem þeim finnst reglur um vopnaburð og valdbeitingu gæslunnar óskýrar. Frakkar, sem stjórna nú friðargæsluliði Sameinuðu Þjóðanna í Líbanon hafa boðist til að senda 200 friðargæsluliða til viðbótar við þá 2.000 hermenn sem þegar eru á svæðinu. Búist er við að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna, tilkynni hvaða land muni stjórna friðargæslunni fyrir helgi.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira