Viðskipti innlent

Hekla skilaði 32,3 milljóna hagnaði

Hekla fasteignir efh. skilaði 32,3 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári tapaði félagið 439.000 króna.

Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kemur fram að heildartekjur Heklu hafi numið 89,8 milljónum króna og rekstrargjöld numið 23,3 milljónum króna en rekstrarhagnaður (EBITDA) nam 66,5 milljónum.

Heildartekjur Heklu í lok júní námu rúmlega 1,9 milljörðum króna en heildarskuldir félagsins námu á sama tímabili rúmum 1,8 milljörðum króna og var eigið fé 133,3 milljónir króna. Þá var eiginfjárhlutfall 6,8 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×