Isabella Peron, fyrrverandi forseti Argentíun, var í gær framseld yfirvöldum í heimalandinu. Hún er sökuð um að hafa fyrirskipað fjölmörg morð og mannrán á valdatíma sínum.
Isabella Peron tók við embætti á forseta áttunda áratug síðustu aldar eftir að eiginmaður hennar, Juan Peron, þáverandi forseti Argentínu, lést. Isabella giftist Peron nokkrum árum eftir að hin goðsagnakennda eiginkona hans Eva Peron lést.
Isabella, sem er 75 ára, hefur búið á Spáni síðan her Argentínu kom henni frá völdum árið 1976.