Apple og Apple semja 7. febrúar 2007 19:45
Apple-tölvurisinn og Apple, útgáfufélag Bítlanna, hafa grafið stríðsöxina og bundið enda á þriggja áratuga lagadeilur um rétt til nafns og vörumerkis. Þetta gæti þýtt að Bítlalög verði í boði hjá iTunes og öðrum tónlistarveitum á netinu í fyrsta sinn. Apple útgáfufyrirtækið stofnuðu Bítlarnir í janúar árið 1968 og er í eigu eftirlifandi Bítla og ættingja þeirra sem horfnir eru. Helsta verk þess er að halda utan um útgefið efni hljómsveitarinnar. Tölvufyrirtækið Apple var stofnað 1976. Tveimur árum síðar var það kært fyrir brot á lögum um vörumerki. Samkomulag tókst árið 1991 en tólf árum síðar var kært á ný þegar tölvurisinn opnaði fyrir iTunes tónlistarveituna á vefnum. Deilt var hart í fyrra en nú hefur samkomulag tekist. Samkvæmt því eignast Apple tölvufyrirtækið öll vörumerki en Apple útgáfufyrirtækið fær að nota þau. Paul Williamson, fréttaritstjóri blaðsins Music Week, segir samkomulagið binda enda á baráttu fyrirtækjanna og eyði því sem hafi hingað til komið í veg fyrir að verk Bítlanna verði fáanleg á vefnum, sér í lagi á iTunes tónlistarveitu Apple tölvurisans, sem hafi 80% markaðshlutdeild og leiðandi á sínu sviði. Williamson segir ómöglegt að spá fyrir um hvað fáist fyrir lög Bítlanna á netinu ef eftirspurnin verði mikil.
Erlent Fréttir Mest lesið Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Erlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Tilkynnt um helst til ungan ökumann Innlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Innlent Fleiri fréttir Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Sjá meira