Fótbolti

Ferguson: Leikmenn Lille voru til skammar

Ferguson náði ekki upp í nefið á sér eftir framkomu leikmanna Lille
Ferguson náði ekki upp í nefið á sér eftir framkomu leikmanna Lille AFP

Sir Alex Ferguson var ekki par hrifinn af áköfum mótmælum leikmanna Lille eftir sigurmark Ryan Giggs fyrir Manchester United gegn Lille í Meistaradeildinni í kvöld. Leikmenn Lille gerðu sig líklega til að ganga af velli til að mótmæla ákvörðun dómarans um að leyfa Giggs að taka aukaspyrnuna strax og vakti það mikla reiði Ferguson.

Ryan Giggs skoraði beint úr aukaspyrnu sem hann tók með leyfi dómarans, en þá voru varnarmenn og markvörður franska liðsins hvergi nærri tilbúnir og boltinn sveif því auðveldlega í netið. Frammistaða dómarans verður með öllu að teljast nokkuð einkennileg, því allt útlit var fyrir að dómarinn ætlaði að stöðva leikinn og gera athugasemdir við varnarveginn þegar skotið kom skyndilega.

Alex Ferguson var þó á öðru máli og ljóst er að markið stendur sama hvað raular eða tautar. Skotinn var á því að hegðun þeirra frönsku hafi verið skammarleg.

"Knattspyrnusambandið verður að gera eitthvað í þessari framkomu leikmanna Lille, því hún var skammarleg og á alls ekki heima í fótbolta. Starfsmenn Lille voru að hvetja leikmennina til að koma af velli og ég hef aldrei á minni ævi séð annað eins.

UEFA verður að taka hart á þessu máli, það er nauðsynlegt. Svo til að kóróna allt rigndi blysum yfir Gary Neville og starfsfólk okkar eftir þetta. Aukaspyrnur á borð við þessa eru orðnar daglegt brauð í boltanum og ég hef séð það fimm eða sex sinnum á Englandi og þar af einum þrisvar sinnum frá Arsenal," sagði Ferguson gáttaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×