Viðskipti erlent

Byggðastofnun skilaði 10 milljónum í hagnað

Byggðastofnun skilaði 10,1 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samanborið við 272,2 milljóna króna hallarekstur árið 2005. Í ársuppgjöri stofnunarinnar segir að í vetur hafi á ný verið lagt fram á Alþingi frumvarp um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun en það hafi hins vegar ekki verið afgreitt.

Samkvæmt frumvarpinu á Nýsköpunarmiðstöð Íslands að verða til með sameiningu Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins. Eigi stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands að verða hluti af umfangsmikilli uppstokkun í opinberu stuðningskerfi nýsköpunar og atvinnuþróunar á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis.

Rekstrartekjur Byggðastofnunar námu 704,9 milljónum króna á tímabilinu og rekstrargjöld að meðtölum framlögum í afskriftarreikning útlána og niðurfærsla hlutafjár 732,8 milljónum króna. Framlög í afskriftarreikning útlána og niðurfært hlutafé nam 311,5 milljónum króna á sama tíma.

Þá nam eigið fé 1,05 milljörðum króna, eða 8,62 prósentum af niðurstöðu efnahagsreiknings.

Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 8,91 prósent en það skal ekki vera lægra en sem svara 8 prósent af áhættugrunni.

Ársuppgjör Byggðastofnunar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×