Viðskipti erlent

Lítil breyting á markaði í Bandaríkjunum

Fjármálamarkaðir í Bandaríkjunum opnuðu fyrir skömmu. Lækkanir á vísitölum á mörkuðum í Asíu og í Evrópu virðast ekki hafa skilað sér vestur um haf enda hækkuðu helstu vísitölur á bandaríska markaðnum lítillega.

Dow Jones-vísitalan hækkaði um 0,28 prósent skömmu eftir opnun markaða. Nasdaq-vísitalan um 0,11 prósent en S&P 500 um 0,05 prósent. Vísitölurnar döluðu lítið eitt skömmu síðar.

Vísitölurnar lækkuðu talsvert í síðustu viku eftir fall á kínverska fjármálamarkaðnum. Dow Jones fór niður um 4,2 prósent, Nasdaq lækkaði um 5,9 prósent og S&P 500 vísitalan lækkaði um 4,4 prósent. Önnur eins lækkun hafði ekki sést vestanhafs í fjögur ár, að sögn greinenda.

Ýmsir þættir áttu hlut að máli auk lækkunarinnar í Kína, þar á meðal kólnandi fasteignamarkaður í Bandaríkjunum, hækkandi heimsmarkaðsverð á hráolíu, hiti í kjarnorkudeilu bandarískra stjórnvalda og Írana.

Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær í viðtali á bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC, að hann teldi bandaríska hagkerfið í góðum gír og bætti við, að þótt lækkanir yrðu á mörkuðunum myndi það ekki vara að eilífu, að hans sögn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×