Fótbolti

Beguiristain: Hentar okkur vel að sækja

NordicPhotos/GettyImages

Txiki Beguiristain, yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, segir það liðinu í hag að þurfa að sækja gegn Liverpool á Anfield annað kvöld. Hann segir heldur ekkert benda til þess að Barcelona eigi ekki að geta unnið á Anfield.

"Við þurfum að sækja og þeir munu liggja til baka - og það er staða sem hentar okkur prýðilega. Við getum alveg skorað tvö mörk á örfáum mínútum. Við verðum að spila árangursríkan sóknarleik og nýta færi okkar vel - og ef Liverpool getur tapað á heimavelli fyrir liðum eins og Arsenal og Manchester United - því ætti það þá ekki að geta tapað þar fyrir El Barca," sagði Beguiristain.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×