Fótbolti

Jafnt á Anfield í hálfleik - Chelsea undir

NordicPhotos/GettyImages

Staðan í leik Liverpool og Barcelona á Anfield Road er jöfn 0-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Evrópumeistararnir mega þakka fyrir að hafa haldið jöfnu því Liverpool hefur átt 9 skot á markið en Barca aðeins 1 og hefur enska liðið átt fleiri en eitt skot í tréverkið.

Chelsea er óvænt undir á heimavelli 1-0 gegn Porto þar sem Ricardo Quaresma skoraði mark gestanna á 15. mínútu og kom Porto þar með í ágæta stöðu.

Roma er líka að koma nokkuð á óvart, en eftir 0-0 jafntefli við Lyon á heimavelli í fyrri leiknum - er liðið komið í 2-0 á útivelli í þeim síðari. Francesco Totti (22.) og Alessandro Mancini (44.) skoruðu mörk ítalska liðsins.

Staðan í leik Valencia og Inter Milan er jöfn 0-0 þar sem fyrri leiknum lauk með 2-2 jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×