Fótbolti

Rijkaard: Liverpool átti skilið að fara áfram

NordicPhotos/GettyImages

Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, var auðmjúkur eftir að hans menn féllu úr keppni í Meistaradeildinni í kvöld þrátt fyrir 1-0 sigur á Anfield. Hann sagði Liverpool eiga skilið að fara áfram og hrósaði enska liðinu fyrir gott skipulag og baráttu.

"Ég verð að byrja á því að óska Liverpool til hamingju með sigurinn," sagði Rijkaard á blaðamannafundi. "Þeir spiluðu af miklum krafti, voru skipulagðir og sterkir andlega í þessu einvígi. Við náðum að jafna markatöluna í 2-2 með því að vinna 1-0 í kvöld, en við vorum líka mjög heppnir á köflum í kvöld. Við náðum ekki að klára þetta verkefni en ég er ánægður með hugarfar leikmanna minna," sagði Rijkaard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×