Fótbolti

Cannavaro verður ekki með Real í kvöld

Miðvörðurinn Fabio Cannavaro getur ekki leikið með Real Madrid í kvöld þegar liðið sækir Bayern Munchen heim í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Cannavaro meiddist á nára á æfingu í gær og þetta þýðir að þeir Ivan Helguera og Sergio Ramos munu líklega standa í hjarta varnarinnar og hinn ungi Miguel Torres tekur bakvarðarstöðu Ramos.

Real hefur nauma 3-2 forystu eftir fyrri leikinn á Spáni og því er þýska liðið í ágætri stöðu til að komast áfram. Leikur Bayern og Real verður sýndur beint á Sýn Extra í kvöld og hefst klukkan 19:45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×