Viðskipti erlent

Tilboð í Chrysler fær dræmar viðtökur

Kirk Kerkorian.
Kirk Kerkorian. Mynd/AFP

Yfirtökutilboð bandaríska auðkýfingsins Kirk Kerkorian í bandaríska Chrysler-hluta þýska bílaframleiðandans DaimlerChrysler hefur fengið dræmar viðtökur innan stjórnar fyrirtækisins. Tilboðið hljóðar upp á 4,5 bandaríkjadali, jafnvirði rúmra 302 milljarða íslenskra króna. Þetta er helmingi minna en gert var ráð fyrir að fengist fyrir fyrirtækið.

Stjórn og hluthafar DaimlerChrysler segja tilboðið fjarri veruleikanum og eina tilgang þess að valda umróti innan hluthafahópsins. Bandaríska dagblaðið The Detroit Free Press hefur eftir þýskum greinanda að stjórn bílaframleiðandans vilji síst af öllu setjast við samningaborðið með bandaríska auðkýfingnum.

Kerkorian keypti hluti í Chrysler á tíunda áratug síðustu aldar og gerði yfirtökutilboð í félagið í kjölfarið. Þegar Daimler-Benz og Chrysler gengu í eina sæng árið 1998 reyndi hann að kæra ferlið á þeim forsendum að það kæmi niður á hagnaði hans af sölu hlutabréfa. Það skilaði engum árangri. Er sagt að yfirtökutilboð hans nú eigi að endurspegla skoðun hans á því að samruninn hafi ekki skilað því sem vænst var til enda hefur Chrysler-hlutinn dregið úr heildarafkomu DaimlerChrysler með viðvarandi hallarekstri, ekki síst í fyrra þegar fyrirtækið tapaði 1,5 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði rúmum 100 milljörðum íslenskra króna.

Auk Kerkorians hafa nokkur félög sýnt áhuga á kaupum á Chrysler. Þar á meðal kanadíska fyrirtækið Magna International og fjárfestingasjóðirnir Blackstone Group og Cerberus Capital Management.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×