Sjö ítalskir dómarar reknir frá störfum

Ítalska dómarasambandið tilkynnti í dag að sjö aðaldómarar og tveir aðstoðardómarar hefðu verið reknir úr samtökunum vegna tengsla þeirra við nýtt spillingarmál sem verið hefur í rannsókn á Ítalíu. Þetta voru niðurstöður ítarlegrar rannsóknar sem gerð var á leikjum sem fram fóru í A-deildinni leiktíðina 2004-05. Þessi rannsókn var framkvæmd í framhaldi af þeirri sem varð til þess að Juventus var dæmt niður í B-deildina í sumar.