Framkvæmdastjórar tippa á Dirk Nowitzki 25. apríl 2007 17:09 NordicPhotos/GettyImages
Nú styttist óðum í að fjölmiðlamenn í Bandaríkjunum velji verðmætasta leikmann ársins í deildarkeppninni í NBA körfuboltanum. Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks þykir afar líklegur til að hreppa hnossið að þessu sinni en hann hlaut nokkuð afgerandi kosningu í könnun sem gerð var í gær þar sem framkvæmdastjórar allra liða í deildinni voru spurðir um sitt álit. Fastlega er reiknað með því að það verði annað hvort tvöfaldur verðmætasti leikmaður deildarinnar Steve Nash hjá Phoenix eða vinur hans Nowitzki sem fái nafnbótina að þessu sinni. Framkvæmdastjórarnir hallast þó að Nowitzki ef marka má könnunina. Nowitzki fékk þar 17 atkvæði í fyrsta sæti og 8 í annað sæti og samtals 109 stig. Nash varð annar með 82 stig og Kobe Bryant hjá LA Lakers hlaut 21 stig í þessari könnun. Nowitzki var með 24,6 stig að meðaltali í leik í vetur og hirti 8,9 fráköst, en lið Dallas vann 67 leiki af 82 í deildarkeppninni sem er einstakur árangur. Í þessari sömu könnun spáðu framkvæmdastjórarnir því nær einróma að Brandon Roy hjá Portland yrði valinn nýliði ársins, Marcus Camby hjá Denver varnarmaður ársins og Kevin Martin hjá Sacramento sá maður sem tekið hefði mestum framförum. Þeir spáðu því að Leandro Barbosa hjá Phoenix yrði valinn besti varamaðurinn og það kom á daginn - en þeir höfðu ekki rétt fyrir sér í valinu á þjálfara ársins, því þar spáðu þeir Avery Johnson hjá Dallas sigri en hann hafnaði aðeins í þriðja sæti.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira