Fótbolti

Kaka: United spilar brasilískan bolta

Kaka er hrifinn af Ronaldo og Rooney
Kaka er hrifinn af Ronaldo og Rooney NordicPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan segir að Manchester United spili eins og lið frá Brasilíu og var hann hrifinn af spilamennsku liðsins þegar það tók á móti Milan í Meistaradeildinni í vikunni. Hann segir ekki rétt að Arsenal spili brasilískan bolta eins og sumir hafi haldið fram.

"Ég fylgist með leikjum í ensku úrvalsdeildinni í sjónvarpi og mér þykir United spila einna helst með brasilískum stíl. Þeir Rooney og Ronaldo eru mjög hæfileikaríkir og liðið spilar boltanum eftir jörðinni í stað þess að nota langar sendingar. Fólk segir að Arsenal spili brasilískan bolta, en ég held að það eigi mun frekar við um Manchester United," sagði Kaka í samtali við Daily Telegraph.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×