Tekst Golden State hið ómögulega í kvöld? 1. maí 2007 18:13 Dirk Nowitzki og félagar geta komist í sögubækurnar á versta mögulega hátt með tapi í nótt NordicPhotos/GettyImages
Þeir sem hafa aðgang að NBA TV sjónvarpsstöðinni geta í kvöld orðið vitni að einhverjum óvæntustu úrslitum í sögu NBA deildarinnar ef Golden State Warriors tekst að leggja Dallas Mavericks að velli í fimmta leik liðanna klukkan hálf tvö. Öskubuskulið Golden State, sem slefaði inn í áttunda sætið í úrslitakeppninni á síðustu dögum deildarkeppninnar hefur öllum að óvörum komist 3-1 yfir í einvíginu við besta lið deildarinnar í vetur. Dallas vann 67 leiki í deildarkeppninni sem er sjötti besti árangur allra tíma í NBA. Það hefur ekki komið í veg fyrir að Golden State sé búið að vera betri aðilinn í einvíginu og takist liðinu að vinna í Dallas í nótt - verða það óvæntustu úrslit í sögu fyrstu umferðar úrslitakeppninnar. Dallas-liðið er greinilega farið að láta mótlætið setjast á sálina og ekki síst í ljósi yfirlýsingar Dirk Nowitzki fyrir síðasta leik, þar sem hann sagði að einvígið væri búið ef Dallas næði ekki að vinna fjórða leikinn. Þjálfarinn Avery Johnson er ekki hrifinn af yfirlýsingum Þjóðverjans. "Ég er orðinn þreyttur á að heyra að Golden State sé búið að taka Dirk út úr sínum leik og hvernig hann eigi að skorta sjálfstraust. Ég sjálfur var ekki besti leikmaður í heimi - en það var alveg sama hvað gekk á - þú náðir ekki að taka af mér sjálfstraustið. Ég verð mjög vonsvikinn ef ég sé ekki sjálfstraustið geisla af mínum mönnum í upphituninni fyrir leikinn, en við munum finna leið til að vinna þennan leik," sagði Avery Johnson.
NBA Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira