Lögregla á Suðurnesjum var kölluð til á Veitingastaðinn Twix undir morgun þar sem maður lá meðvitundarlaus eftir líkamsáras. Maðurinn mun hafa lent í átökum við annan með þessum afleiðingum. Hann var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild með áverka í andliti. Líðan hans er eftir atvikum.
Karlmaður á þrítugsaldri hlaut töluverða skurði á höfði þegar hann var laminn með flösku í átökum þriggja karlmanna í Breiðholti á fjórða tímanum í nótt. Atvikið átti sér stað fyrir utan veitingastaðinn Big Ben. Fimm lögreglubílar fóru á staðinn auk tveggja sjúkrabíla. Maðurinn var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans.
Að sögn lögreglu var mikill erill í borginni í nótt og töluvert um ölvun.