Viðskipti erlent

Paulson ekki á fundi iðnríkjanna

Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna.
Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Mynd/AFP

Tveggja daga fundur fjármálaráðherra átta stærstu iðnríkja heims hófst í Potsdam í Þýskalandi í dag. Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, var hins vegar fjarri góðu gamni en hann sagðist of önnum kafinn til að mæta á fundinn.

Fundinn sitja fjármálaráðherrar frá Bretlandi, Kanada, Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Japan og Rússlandi. Gert er ráð fyrir að Paulson mæti á næsta fund ráðherranna í byrjun næsta mánaðar.

Á dagskrá fundarins að þessu sinni er umræða um nauðsyn góðra stjórnhátta í Afríku og reglugerðasmíði fyrir starfsemi fjárfestingasjóða en Þjóðverjar hafa þrýst á um að sjóðunum verði settar þrengri skorður. Bandaríkjamenn, stjórnvöld í Kanada og Bretlandi þykja hins vegar vera mótfallin ströngum aðgerðum til að hamla starfsemi sjóðanna.

Breska ríkisútvarpið segir Paulson hafa ákveðið að sitja heim til að ljúka ýmsum verkum auk þess sem mikið verk liggi í undirbúningi fyrir heimsókn kínverskrar sendinefndar til Bandaríkjanna í næstu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×