Viðskipti erlent

Greenspan olli lækkun á markaði

Alan Greenspan, fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna.
Alan Greenspan, fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Mynd/Reuters

Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Sjanghæ í Kína lækkaði um 1,5 prósent í dag eftir að Alan Greenspan, fyrrum aðalseðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði í ræðu í gær að gengi bréfanna ofmetið og sagðist sjá mikla leiðréttingu á verði þeirra í framtíðinni. Þá lækkaði gengi bréfa sömuleiðis á helstu mörkuðum í Evrópu og í Bandaríkjunum af sömu sökum.

Greenspan benti í máli sínu á að gengi hlutabréfa hefði hækkað um 50 prósent það sem af væri árs og væri ekki útlit fyrir viðlíka hækkanir út árið.

Nokkurs titrings hefur gætt á mörkuðum eftir þetta, ekki síst í Bandaríkjunum en fjármálamarkaðir þar í landi eru viðkvæmir fyrir hvers kyns skelli eftir samdrátt á fasteignalánamarkaði fyrr á þessu ári sem leiddi af sér mikla lækkun á helstu vísitölum. Töldu nokkrir markaðsaðilar að orð Greenspans væru ofmetin á meðan aðrir óttuðust að hlutabréfamarkaðurinn í Kína gæti fallið hratt.

Einn greinandi í Kína sagði í samtali við breska ríkisútvarpið að hann hefði engar áhyggjur, því Greenspan hefði litla þekkingu á kínverskum hlutabréfamarkaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×