Wallace með lausa samninga 26. júní 2007 22:00 Gerald Wallace treður með tilþrifum í leik gegn Indiana í vor NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn Gerald Wallace hjá Charlotte Bobcats verður með lausa samninga hjá liðinu á sunnudaginn eftir að hann ákvað í dag að afsala sér síðasta árinu af samningi sínum við félagið. Wallace verður væntanlega eftirsóttur á næstu dögum eftir frábært tímabil í fyrra. Wallace er 25 ára gamall og gekk í raðir Charlotte árið 2004 eftir þrjú ár sem varaskeifa hjá Sacramento. Hann sprakk út þegar hann fékk loks tækifæri til að spila og hefur vakið mikla athygli með framgöngu sinni með Bobcats. Hann var stigahæsti maður liðsins síðasta vetur með rúm 18 stig í leik, hirti 7 fráköst og var með efstu mönnum í deildinni í vörðum skotum og stolnum boltum. Wallace fékk ekki nema um 5,5 milljónir dollara í árslaun á síðasta tímabili hjá Charlotte og hætt er við því að hann vilji fá samning nú sem tryggir honum í það minnsta 10 milljónir á ári. Ekki eru mörg lið í deildinni sem hafa efni á að fá hann beint í sínar raðir, en hætt er við því að Michael Jordan og félagar í stjórn Charlotte eigi eftir að fá nokkur símtölin vegna framherjans á næstu dögum. Talsmenn Bobcats hafa flestir gefið það út að áhugi sé fyrir því að semja aftur við Wallace, en félagið borgaði ekki nema um 41 milljón dollara í heildarlaun á síðasta tímabili. Það er langlægsta upphæð allra 30 liðanna í deildinni og til að mynda minni peningur en byrjunarliðsmenn New York Knicks þéna á ári.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira