Ein af ráðgátum Titanic slyssins leyst Óli Tynes skrifar 3. ágúst 2007 13:15
Ein af stærstu ráðgátum Titanic slyssins er nú loksins leyst. Búið er að bera kennsl á eins árs dreng sem fannst látinn á reki í sjónum sex dögum eftir að skipið sökk árið 1912. Hann var breskur, og hét Sidney Leslie Goodwin. Talið er að 1512 manns hafi farist með Titanic, en aldrei hefur tekist að negla niður ákveðna tölu. Fjölmargir fóru með Titanic niður í kalda gröf en það fundust einnig mörg lík á reki í sjónum og það var mikið verk að bera kennsl á þau. Sex dögum eftir að skipið fórst fannst lík af eins árs gömlum dreng á reki. Enginn gat borið kennsl á hann en leiddar voru líkur að því að hann hefði verið finnskur og heitið Eino Panula. Sem slíkur var hann jarðsettur. En vísindunum hefur fleygt fram síðan 1912 og með DNA greiningu hafa kanadiskir vísindamenn komist að því að drengurinn hét Sidney Leslie Goodwin. Foreldrar hans voru breskir og ætluðu að freista gæfunnar í Ameríku, eins og svo margir aðrir farþegar á þriðja farrými. Sidney litli var jarðsettur í Halifax í Kanada, eins og aðrir sem fórust með skipinu sem átti ekki að geta sokkið.
Erlent Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Sjá meira