Viðskipti erlent

Taugatitringur á mörkuðum

Guðjón Helgason skrifar

Taugatitrings hefur gætt á mörkuðum um allan heim í dag. Krónan veiktist um tæp 3% í dag og hefur veikst um 12% á einum mánuði. Úrvalsvísitalan íslenska lækkaði um tæp 4% í dag og hefur ekki verið jafn lág í fjóra mánuði.

Hlutabréfavísitölur víða um heim hafa lækkað töluvert í dag. Úrvalsvísitalan féll um 3,84% og ekki verið lægri sína í byrjun apríl.

Verð á bréfum í íslenskum félögum hefur lækkað töluvert í dag, mest í Exista um 8,32%.

Krónan hefur veikst um 3% í dag - 12% á einum mánuði.

Allt er þetta rakið til vanskila á áhættusömum húsnæðislánum í Bandaríkjunum. Það þýði að fjárfestar um allanheim taki enga áhættu.

Hafliði Helgason, ritstjóri Markaðarins, segir fjárfesta þá horfa á krónuna sem áhættugjaldmiðil, hávaxamynt í hærri áhættu. Því dragi þeir sig frekar heim í það sem þeir telja öruggt skjól. Það hafi aftur áhrif því einhver hópur hafi skuldsett sig í erlendum myntum á móti innlendum eignum - þ.e. hlutabréfum. Daga sem þennan í dag liggi svo bankar í símanum til viðskiptavina sem standi tæpt og skipi þeim að selja. Fáir séu svo að kaupa - haldi að sér höndum og bíði átekta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×