Svartfellingar númeri of stórir 17. september 2008 21:34 Jón Arnór skoraði 20 stig í kvöld Mynd/AntonBrink
Íslenska landsliðið í körfuknattleik tapaði í kvöld fyrir Svartfellingum 80-66 í Evrópukeppninni í körfubolta. Gestirnir höfðu örugga forystu lengst af leik og var sigur þeirra aldrei í sérstakri hættu. Íslenska liðið komst yfir 6-2 í leiknum en eftir það náðu Svartfellingar forystu sem þeir létu aldrei af hendi. Gestirnir höfðu yfir 22-14 eftir fyrsta leikhluta og 47-24 í hálfleik. Það var öðru fremur fyrri hálfleikurinn sem var íslenska liðinu að falli í kvöld, en allt annað var að sjá íslensku strákana í þeim síðari. Íslenska liðið skoraði fleiri stig en andstæðingurinn í síðari hálfleik og hefði með smá heppni geta hleypt spennu í leikinn, en strákarnir fóru á köflum illa að ráði sínu og fóru t.d. illa með vítaskotin sín. Jón Arnór Stefánsson var í nokkrum sérflokki í sóknarleiknum og skoraði 20 stig, Logi Gunnarsson skoraði 11 og Hlynur Bæringsson skoraði 8 stig og hirti 7 fráköst. Vlado Scepanovic var stigahæstur hjá Svartfellingum með 16 stig og Goran Jeretin skoraði 12. Svartfellingar unnu baráttuna um fráköstin með yfirburðum 48-27, enda með gríðarlega hávaxið lið sem gerði íslensku strákunum erfitt fyrir undir körfunni. Miðherjinn Fannar Ólafsson hjá KR lék ekki með íslenska liðinu í kvöld vegna veikinda, en hann mun væntanlega fara með íslenska liðinu til Austurríkis í fyrramálið þar sem næsti leikur er á laugardaginn.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Sjá meira