Breiðablik gerði góða ferð til Keflavíkur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. október 2008 21:14 Nemanja Sovic skoraði 41 stig fyrir Breiðablik í kvöld en hér er hann í Fjölnisbúningnum.
Breiðablik gerði sér lítið fyrir og lagði Keflavík í Iceland Express deild karla í kvöld. KR og Grindavík unnu einnig sína leiki og eru ósigruð á toppi deildarinnar. Jón Arnór Stefánsson var með þrefalda tvennu í sigri KR-inga. Sigur Blika var nokkuð öruggur en staðan í hálfleik var 55-46. Sá munur jókst um tíu stig eftir fjórða leikhluta og voru lokatölur 107-86. Nemanja Sovic var stigahæstur Blika með 41 stig auk þess sem hann tók tólf fráköst. Kristján Sigurðsson kom næstur með 23 stig. Hjá Keflavík var Hörður Axel Vilhjálmsson stigahæstur með 21 stig og þeir Gunnar Einarsson og Þröstur Jóhannsson skoruðu átján stig hvor. KR-ingar byrjuðu mjög vel á móti Snæfelli og höfðu þrettán stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 30-17. KR-ingar héldu þessum mun meira eða minna allt til loka og unnu ellefu stiga sigur, 91-80. Jason Dourissau var stigahæstur með 21 stig, Jón Arnór Stefánsson sokraði nítján og Jakob Sigurðarson átján. Jón Arnór átti reyndar stórleik og náði þrefaldri tvennu en auk stiganna nítján sem hann skoraði tók hann tíu fráköst og gaf ellefu stoðsendingar. Sigurður Þorvaldsson var heldur ekki langt frá því að ná þrefaldri tvennu en hann skoraði 24 stig, tók fjórtán fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Jón Ólafur Jónsson skoraði 21 stig og tók tíu fráköst. Grindavík vann svo stórsigur á Skallagrími, 126-59. Páll Axel Vilbergsson og Guðlaugur Eyjólfsson voru báðir með 24 stig fyrir Grindavík. Þorsteinn Gunnlaugsson skoraði sextán stig fyrir Skallagrím og Sveinn Davíðsson fjórtán.
Dominos-deild karla Mest lesið Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Ólafur Guðmundsson til Noregs Fótbolti Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Íslenski boltinn Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Fótbolti Brazell ráðinn til Vals Íslenski boltinn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Uppgjörið: KR - Tindastóll 95-116 | Jólamaturinn fór betur í gestina Uppgjörið: Höttur - Haukar 86-89 | Gestirnir unnu botnslaginn á Egilsstöðum Butler vill í burtu: Tilbúinn að spila með öllum liðum nema Miami Heat Friðrik um viðskilnaðinn við Keflavík: „Ákvað að standa með sjálfum mér“ Fótbrotnaði í NBA leik Var aðdáandi Chiefs áður en Mahomes og Travis mættu til sögunnar „Stoltur af strákunum sem eru að taka töluvert meiri ábyrgð“ „Það er krísa“ Uppgjörið: Keflavík - Álftanes 87-89 | Langþráður sigur Álftnesinga Tryggvi Snær tók flest fráköst í góðum sigri Uppgjörið og viðtöl: ÍR - Grindavík 98-90 | ÍR sigraði í framlengdri rússibanareið Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 106-104 | Heimasigur í hörkuleik Íslenska körfuboltaárið hefur aldrei byrjað fyrr Friðrik Ingi orðinn þjálfari Hauka Sakar NBA-deildina um að vera á móti Houston Rockets Lauk árinu með fjörutíu stiga leik Fertugur LeBron gæti spilað „fimm til sjö ár“ til viðbótar Martin stiga- og stoðsendingahæstur í tapi Berlínarmanna Sá þriðji í sögunni til að spila fullkominn leik De'Sean Parsons mætir aftur til Hauka Meiddist eftir aðeins eina sekúndu Kostaði hann fjórtán milljónir að nota f-orðið í viðtali Stiklað á stóru sigrunum: „Erum stolt af því að vera íþróttabær“ Brotist inn til Doncic Grindvíkingar um daginn örlagaríka: „Í fyrsta sinn sem ég missi kúlið“ Ein skærasta stjarna NBA tefldi við fólk úti á götu Elvar og félagar upp úr fallsæti eftir langþráðan sigur Tryggvi og Bilbæingar luku árinu með sigri Samspil Elvars og Tryggva meðal tilþrifa ársins Sjá meira